Til eru margar tegundir af getnaðarvörnum. Getnaðarvarnir geta verið með eða án hormóna. Við val á getnaðarvörn er mikilvægt velta fyrir sér kostum og göllum hverrar tegundar. Svo er líka gott að hafa í huga að það sem hentar einum einstakling hentar ekki endilega öðrum.
Getnaðarvarnir
Efnisyfirlit
Smokkurinn
Smokkurinn er eina leiðin til að draga úr líkum á kynsjúkdómasmiti sé hann rétt notaður. Til að smokkurinn virki til að draga úr líkum á smiti er nauðsynlegt að nota hann frá byrjun þannig að slímhúðir þeirra sem stunda kynmök snertist ekki.
Alltaf skal nota smokkinn ef um er að ræða samfarir við einstakling sem viðkomandi þekkir lítið eða ekkert. Sem getnaðarvörn virkar hann þannig að hann kemur í veg fyrir að sæðið fari inn í leggöng við samfarir.
Smokkurinn fæst víða, meðal annars í matvörubúðum, bensínstöðvum og apótekum. Hann er til í ýmsum litum, gerðum og bragðtegundum.
Hægt er að klippa smokkinn til að búa til töfrateppi, sem t.d. hægt er að nota við munnmök!
Ertu með latex ofnæmi? Það er hægt að fá latex fría smokka!
Pillan
Pillan er hormónatafla sem tekin er inn daglega. Hún er til í tveimur gerðum:
- Önnur tegundin inniheldur tvö hormón: estrógen og gestagen. Til eru margar mismunandi samsetningar og sumir þurfa að prófa ólíkar pillur til að finna þá sem hentar
- Hin hefur bara eitt hormón, gestagen, og er kölluð minipillan, p-pillan eða brjóstapillan (því á henni má vera með barn á brjósti)
Notkun
Til að byrja á pillunni þarf að fá lyfseðil fyrir henni. Hægt er að gera það t.d. á heilsugæslu eða hjá kvensjúkdómalækni. Pilluna skal taka inn daglega, alltaf á sama tíma. Sumir taka vikulanga pillupásu eftir hverjar þrjár vikur, en það er ekki nauðsynlegt. Mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn vel og ræða við fagfólk.
Öryggi
Pillan er mjög örugg getnaðarvörn þegar hún er tekin reglulega samkvæmt leiðbeiningum, en mikilvægt er að muna alltaf eftir því að taka hana. Ef það gleymist að taka pilluna skal gera það um leið og maður man eftir því. Gleymd pilla getur leitt til þess að vörnin minnki og því er gott að nota smokk næstu vikuna.
Áhætta
Áhætta af notkun pillunnar hefur verið skoðuð og eru til rannsóknir sem sýna mælanlega aukningu á sumu krabbameini en minnkun á öðru. Önnur alvarleg áhætta tengd samsettu pillunni er blóðtappi og er smá munur milli tegunda. Þeir sem reykja eða eru í yfirþyngd eru í aukinni áhættu að fá blóðtappa.
Mögulegar aukaverkanir:
- Breytingar í húð
- Skapsveiflur
- Þyngdaraukning
- Eymsli í brjóstum
- Milliblæðingar
- Minnkuð kynhvöt
- O.fl.
Hringurinn
Hormónahringurinn er grannur plasthringur sem er um 5 cm í þvermál. Hann inniheldur hormónin estrógen og gestagen. Til að byrja á hringnum þarf fyrst að fá lyfseðil fyrir honum. Við fyrstu notkun er hringnum komið fyrir efst í leggöngum eftir blæðingar og hann er hafður þar í 3 vikur. Þá er hann fjarlægður og nýr hringur settur beint upp, eða eftir eina viku og þá er tekið blæðingahlé. Plasthringurinn er frekar mjúkur og auðvelt að koma honum fyrir. Ef maður finnur mikið fyrir honum í kynlífi má taka hann niður í allt að 3 klukkustundir og setja hann svo aftur upp.
Helstu kostir hringsins:
- Örugg getnaðarvörn (+99%)
- Ekki þarf að muna eftir honum daglega
- Blæðingastjórnun er góð og milliblæðingar sjaldgæfar
- Aukaverkanir litlar
- Mun minna hormónamagn en í pillunni
Vegna umhverfisáhrifa á ekki að henda notuðum hring í heimilissorp heldur fara með þá í apótek í förgun eins og öðrum lyfjum. Hver hringur virkar einungis í 3 vikur.
Mögulegar aukaverkanir:
- Aukin útferð
- Minnkuð kynhvöt
- Þyngdaraukning
- Skapsveiflur
- O.fl.
Sprautan
Sprautan er í formi stungulyfs og inniheldur hormónið gestagen. Hún er gefin í vöðva á 3 mánaða fresti (8-12 vikur). Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni getur gefið sprautuna eða hægt er að nota hana heima ef fólk treystir sér til. Til að byrja á sprautunni þarf lyfseðil fyrir henni, t.d. á heilsugæslu eða hjá kvensjúkdómalækni.
Aðalkostir sprautunnar:
- Örugg getnaðarvörn (+99%)
- Ekki þarf að muna eftir getnaðarvörn daglega
- Henni fylgir oftast blæðingaleysi sem mörgum finnst ákjósanlegt. Blæðingaleysið hefur engar hættur í för með sér.
Ef hætt er á sprautunni þarf að reikna með að eftir síðustu gjöf endast áhrif í nokkra mánuði til viðbótar.
Mögulegar aukaverkanir:
- Breytingar í húð
- Skapsveiflur
- Brjóstaspenna
- Höfuðverkur
- O.fl.
Lykkjan
Lykkja er lítill T-laga plasthlutur sem læknir eða ljósmóðir kemur fyrir inni í leginu. Mælt er með ómskoðun fyrir og eftir uppsetningu til að meta legið og staðsetningu lykkjunnar. Læknir eða ljósmóðir þarf að fjarlægja lykkjuna og má gera það hvenær sem er eftir uppsetningu. Til eru tvenns konar lykkjur:
Hormónalykkja
Á lykkjunni er lítið hormónahylki sem gefur frá sér örlítinn skammt af hormónum jafnt og þétt. Hormónalykkjan inniheldur hormónið gestagen. Hérlendis eru mest notaðar þrjár gerðir hormónalykkja:
- Mirena endist í 8 ár sem getnaðarvörn en 5 ár ef hún er notuð gegn miklum tíðablæðingum.
- Jaydess endist í 3 ár sem getnaðarvörn. Er aðeins minni lykkja en Mirena.
- Kyleena endist í 5 ár sem getnaðarvörn. Er jafnstór og Jaydess.
Helstu kostir hormónalykkju eru:
- Örugg getnaðarvörn (+99%)
- Þarf ekki að muna eftir daglegri notkun
- Blæðingar minnka eða hverfa alveg sem mörgum konum finnst ákjósanlegt
- Aðeins staðbundin verkun
- Minna magn hormóna en í öðrum hormónagetnaðarvörnum
- Virkar strax eftir uppsetningu og áhrif hætta um leið og hún er fjarlægð
- Áhrif lykkju og hormóna hindra þungun. Hormónalykkjan ver bæði fyrir þungun í legi og utan þess.
Mögulegar aukaverkanir (oft tímabundnar):
- Milliblæðingar
- Skapsveiflur
- Aukin útferð
- Verkir í kvið og baki
- O.fl.
Koparlykkja
Koparlykkjan er úr plasti og örlitlum kopar sem er til þess að auka áhrifin. Hún situr í leginu og þar hefur hún áhrif til að koma í veg fyrir þungun, en hefur engin önnur áhrif á líkamann. Mælt er með ómskoðun fyrir og eftir uppsetningu til að meta legið og staðsetningu lykkjunnar. Lykkjuna má hafa þann tíma sem þarf á vörn að halda eða allt að 10 ár.
Helstu kostir koparlykkjunnar:
- Örugg getnaðarvörn (+99%)
- Veitir staðbundna vörn
- Gleymist ekki
- Hefur ekki áhrif á hormónastarfsemi líkamans
Auknar tíðablæðingar eru algengasta aukaverkunin og því hentar koparlykkjan síst þeim sem hafa miklar blæðingar. Athugið að koparlykkjan veitir staðbundna vörn í leginu og er því ekki virk til að koma í veg fyrir þungun utan legs (utanlegsfóstur).
Stafurinn
Hormónastafur inniheldur hormónið gestagen og er lyfið í litlum plaststaf sem læknir eða ljósmóðir kemur fyrir undir húðinni á upphandleggnum. Hægt er að finna fyrir stafnum ef maður þreifar fyrir honum en hann sést ekki. Hver stafur endist í 3 ár en læknir/ljósmóðir getur fjarlægt hann hvenær sem er. Húðin er staðdeyfð bæði þegar stafnum er komið fyrir og hann fjarlægður.
Aðalkostir stafsins:
- Örugg getnaðarvörn (+99%)
- Ekki þarf að muna eftir getnaðarvörn daglega
- Honum fylgir oftast blæðingaleysi sem mörgum finnst ákjósanlegt. Blæðingaleysið hefur engar hættur í för með sér.
Þegar stafurinn er fjarlægður fara áhrifin strax úr líkamanum.
Mögulegar aukaverkanir (oft tímabundnar):
- Óreglulegar blæðingar
- Þyngdaraukning
- Breytingar í húð
- O.fl.
Plásturinn
Hormónaplásturinn inniheldur hormónin estrógen og gestagen. Í plástrinum er forðalyf sem endist í eina viku. Við fyrstu notkun er plástrinum komið fyrir á handlegg, öxl eða öðrum góðum stað á líkamanum eftir blæðingar. Að viku liðinni er skipt um plástur. Svo er aftur skipt eftir viku (samtals þrjár vikur með plástur) Fjórða vikan er án plásturs til að fá blæðingar. Þó er hægt er að nota plástra allar vikur og stöðva blæðingar.
Helstu kostir plástursins:
- Örugg getnaðarvörn
- Ekki þarf að muna eftir honum daglega
- Litlar aukaverkanir
Vegna umhverfisáhrifa á ekki að henda notuðum plástrum í heimilissorp heldur fara með þá í apótek í förgun eins og öðrum lyfjum. Plásturinn er minna notaður í dag en hinar getnaðarvarnirnar. Hann er lyfseðilskyldur.
Mögulegar aukaverkanir:
- Höfuðverkur
- Ógleði
- Eymsli í brjóstum
- O.fl.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi getnaðarvarnir ekki hika við að hafa samband, annað hvort í DM á Instagram (@kynfraedsla) eða í tölvupósti (leyndo@astradur.is).